Viðskiptavinir Krónunnar á Akranesi styrkja Mæðrastyrksnefnd

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Viðskiptavinir Krónunnar á Akranesi söfnuðu saman alls 298 þúsund krónum í jólastyrkjasöfnun Krónunnar. Þá gafst viðskiptavinum tækifæri til að styrkja góðgerðarsamtök sem sjá um matarúthlutanir í sínu nærumhverfi í aðdraganda jóla og rennur fjárhæðin óskert til Mæðrastyrksnefndar Akraness sem hlýtur einnig styrk frá Krónunni í formi matarúttekta.\r\n\r\nAlls söfnuðu viðskiptavinir Krónunnar yfir fimm milljónum króna sem renna óskertar til ellefu samtaka um land allt og mun Krónan að auki veita 6,5 milljónir króna til sömu góðgerðarsamtaka, auk tveggja samtaka til viðbótar. Heildarupphæðin nemur því 11,5 milljónum króna sem er samanlagt framlag viðskiptavina og Krónunnar til matarúthlutana.\r\n\r\nSigurður K. Guðmundsson, verslunarstjóri Krónunnar á Akranesi kveðst vera í skýjunum með þessar frábæru viðtökur viðskiptavina á Akranesi, sem kusu að leggja sitt af mörkum til verðugs málefnis í aðdraganda jóla. „Þetta er í annað sinn sem bjóðum viðskiptavinum okkar að láta gott af sér leiða og er upphæð framlagsins í ár framar okkar björtustu vonum. Saman styrkjum við Mæðrastyrksnefnd Akraness sem sinnir mikilvægu og óeigingjörnu starfi við matarúthlutanir fyrir jólin og þykir okkur hjá Krónunni afar vænt um þetta samvinnuverkefni okkar og viðskiptavina.“\r\n\r\nÍ söfnuninni bauðst viðskiptavinum að bæta við 500 krónum í lokaskrefi greiðslu í verslunum og Snjallverslun Krónunnar og þannig gefið tækifæri á að auka stuðning við þá sem þurfa á mataraðstoð að halda fyrir jólin. Styrkirnir eru í formi gjafakorta sem gerir skjólstæðingum kleift að velja sjálfir í matarkörfuna sína.",
  "innerBlocks": []
}
Viðskiptavinir Krónunnar á Akranesi styrkja Mæðrastyrksnefnd - Skessuhorn