Þriggja bíla árekstur á Snæfellsnesi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Skömmu eftir hádegi í dag varð harður þriggja bíla árekstur skammt frá Eiðhúsum í Eyja- og Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi. Samkvæmt heimildum Skessuhorns var atvikalýsing þannig að bíll rann yfir á öfugan vegarhelming, skall fyrst utan í bíl sem kom úr gagnstæðri átt og þriðji bíllinn lenti síðan framan á honum. Mikil mildi þykir að ekki urðu alvarleg slys á fólki, en alls voru tólf manns í bílunum. Fólkið var flutt undir læknishendur á Akranesi en sá sem mest var slasaður var fluttur á slysadeild í Reykjavík. Beita þurfti klippum slökkviliðs á einn bíl. Í þessu útkalli voru boðaðir viðbragðsaðilar af öllu Snæfellsnesi; sjúkrabílar, slökkvilið og lögregla. Aðgerðir á vettvangi gengu vel samkvæmt heimildum Skessuhorns. Veður var gott á slysstað en hitastig lágt og orsakaði það ísingu eða hálkubletti á veginum.\r\n\r\n<img class=\"alignnone size-medium wp-image-49827\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/12/THriggja-bila-arekstur_1-600x450.jpg\" alt=\"\" />",
  "innerBlocks": []
}
Þriggja bíla árekstur á Snæfellsnesi - Skessuhorn