Þessar ungu dömur spiluðu fyrir gesti. Ljósm. af vefsíðu Hvalfjarðarsveitar

Litlu jólin haldin í Hvalfjarðarsveit

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Miðvikudaginn 15. desember síðastliðinn voru Litlu jólin haldin hjá eldri borgurum í Hvalfjarðarsveit í umsjón Sigrúnar Sólmundsdóttur og Ingibjargar Eyju Erlingsdóttur, en frá þessu segir á vefsíðu Hvalfjarðarsveitar.\r\n\r\nÝmis skemmtiatriði voru á boðstólum; Börn úr Hvalfjarðarsveit frá Tónlistarskólanum á Akranesi komu og spiluðu á hljóðfærin sín og Stefán Helgi Stefánsson tenórsöngvari söng nokkur lög. Þá komu prestar frá Garða- og Saurbæjarprestakalli í heimsókn þar sem séra Þráinn Haraldsson flutti hugvekju og séra Ólöf Margrét Snorradóttir las jólasögu.\r\n\r\nBoðið var upp á heitt súkkulaði og alls kyns kræsingar. Mæting var nokkuð góð og skemmtu sér allir vel að sögn.",
  "innerBlocks": []
}
Litlu jólin haldin í Hvalfjarðarsveit - Skessuhorn