
Björgunarsveit að störfum. Ljósm. úr safni.
Björgunarsveitarfólk beðið um að sækja um vinnu í úthringiverum
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Vegna álags í nýjustu kóvidbylgjunni hafa embætti landlæknis og sóttvarnalæknir boðið björgunarsveitarfólki hjá Landsbjörgu, sem starfar á svæðum 1, 2, 3, 4 og 11, að sækja um tímabundin störf við aðstoð í Covid-19 úthringiverum í Reykjavík og á Akureyri.\r\n\r\n„Leitað er eftir einstaklingum innan Slysavarnafélagsins Landsbjargar til starfa við úthringingar. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst og unnið a.m.k næstu þrjár vikur. Einnig þarf viðkomandi að vera vanur tölvuvinnu. Vinnutími er minnst fjórir tímar í senn, þrjár vaktir á viku milli kl. 10:00 og 22:00. Unnið er alla daga vikunnar. Hægt er að vinna lengri og fleiri vinnutarnir sé þess óskað. Í boði er góð starfsaðstaða og starfsumhverfi,“ segir í starfslýsingu. Þá segir að greitt sé fyrir tímavinnu samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. Starfsmenn fá viðeigandi þjálfun til að sinna úthringingum.",
"innerBlocks": []
}