Gylfi Scheving Ásbjörnsson, skipstjóri á beitningarvélabátnum Tryggva Eðvars SH, við löndun í Ólafsvík í gær. Ljósm. af

Vertíðin byrjar snemma

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "„Það er mok í dag,“ segir Gylfi Scheving Ásbjörnsson skipstjóri á beitningarvélabátnum Tryggva Eðvars SH frá Ólafsvík. „Við lögðum eina og hálfa lögn og aflinn er 27 tonn þar af 7 tonn af ýsu sem fer í slæingu og flokkun á fiskmarkaði Snæfellsbæjar. Svo verður þorskurinn sendur í vinnslu hja FISK á Sauðárkróki,“ segir Gylfi og bætir við að ýsan var seld á fiskmarkaði, en óslægð ýsa er á góðu verði eða um 375 krónur á kíló.\r\n\r\nAfli báta á Snæfellsnesi hefur verið eindæma góður að undanförnu og hefur netabáturinn Bárður SH landað 40 til 50 tonnum á dag og línubátar hafa einnig gert það gott ásamt þeim fáu dragnótabátum sem hafa róið að undanförnu, en flestir þeirra eru komnir í jólafrí",
  "innerBlocks": []
}
Vertíðin byrjar snemma - Skessuhorn