Hannes Marinó og Lára Dóra.

Laufabrauðsgerðin á aðventunni er fastur liður í undirbúningi jólanna

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Hannes Marinó Ellertsson, útibússtjóri Landsbankans á Akranesi, er einn þeirra sem alist hefur upp við laufabrauðsgerð á aðventunni frá barnæsku. „Þannig var að móðir mín kynntist laufabrauðsbakstri þegar hún fór í Húsmæðraskóla Reykjavíkur árið 1966. Eftir það varð laufabrauðsgerð fastur liður á aðventunni á æskuheimili mínu í Stykkishólmi, sagði Hannes Marinó. Hann er sonur hjónanna Ellerts Kristinssonar og Jóhönnu Bjarnadóttur sem búsett eru í Stykkishólmi. „Hjá foreldrum mínum var ætíð mikil stemning í kringum laufabrauðsgerðina. Það var spiluð jólatónlist og borðaðar jólasmákökur á meðan hnoðun, flatning, útskurður og steiking stóð yfir. Þá mættu einnig ömmur mínar báðar og voru þær með okkur í fjölskyldunni, foreldrum mínum og bræðrum,“ segir Hannes.\r\n\r\n<em>Viðtal við Hannes má finna í jólablaði Skessuhorns sem kom út síðastliðinn miðvikudag.</em>",
  "innerBlocks": []
}
Laufabrauðsgerðin á aðventunni er fastur liður í undirbúningi jólanna - Skessuhorn