Hvetja til jóla án matarsýkinga

"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Matvælastofnun hefur tekið saman upplýsingar um meðhöndlun matar um hátíðirnar. „Mikið álag er á eldhúsum landsmanna við jólaundirbúning í desember og yfir hátíðirnar. Hreinlæti, kæling og rétt hitun matvæla er afar mikilvæg svo koma megi í veg fyrir að gestir og heimilisfólk fái matarborna sjúkdóma með tilheyrandi óþægindum,“ segir í tilkynningu.\r\n\r\nSjúkdómsvaldandi bakteríur geta borist inn í eldhúsið með kjöti og jarðvegi sem fylgir grænmeti og borist þaðan í önnur matvæli á eldhúsborðinu eða í ísskápnum. Einnig geta þær borist í matvæli frá þeim sem meðhöndlar matvælin og frá þeim búnaði og áhöldum sem eru notuð í eldhúsinu. „Nóróveirur geta dreift sér hratt á jólunum og mikilvægt að einstaklingar með einkenni matarborna sjúkdóma haldi sig frá matargerð. Reglulegur handþvottur minnkar líkur á smiti milli aðila eða frá menguðum matvælum.“\r\n\r\nBent er á að hafa í huga:\r\n
\r\n \t
Hrátt kjöt og safi úr því á ekki að komast í snertingu við matvæli sem eru tilbúin til neyslu
\r\n \t
Þvoum ávexti og grænmeti til að koma í veg fyrir að bakteríur berist í matvæli sem eru tilbúin til neyslu
\r\n \t
Þvoum hendur áður en hafist er handa við matreiðslu og eftir snertingu við hrátt kjöt og óþvegið grænmeti
\r\n \t
Þrífum skurðarbretti og áhöld strax eftir notkun
\r\n \t
Skipuleggjum ískápinn vel og höldum honum hreinum til að koma í veg fyrir krossmengun
\r\n \t
Skiptum reglulega um borðtuskur, viskastykki og handþurrkur
\r\n
\r\nBakteríur fjölga sér mjög hratt við kjöraðstæður. Við 37°C getur ein baktería fjölgað sér í 1000 á 3 tímum og í 1 milljón á 6 tímum.  Það er því mikilvægt að geyma og meðhöndla matvæli við það hitastig að komið verði í veg fyrir hraða fjölgun baktería með því að takmarka þann tíma sem viðkvæm matvæli, s.s. reyktur og grafinn fiskur og álegg er á borðum við stofuhita.  Mest hætta er á fjölgun baktería þegar hitastig matvælanna er milli 5 og 60°C.  Nægileg hitameðhöndlun drepur bakteríur og geymsla við kælihitastig (0-4°C)  takmarkar fjölgun þeirra. Ef halda á matvælum heitum skal þeim haldið við 60°C og við kælingu hitaðra matvæla skal gæta þess að þau nái 4°C á 3 tímum.\r\n\r\nLandsmenn eru hvattir til að tileinka sér hreinlæti, rétta meðhöndlun og kælingu matvæla í eldhúsinu svo koma megi í veg fyrir að matarbornir sjúkdómar spilli jólagleðinni.",
"innerBlocks": []

Hvetja til jóla án matarsýkinga - Skessuhorn