Herða sóttvarnartakmarkanir frá miðnætti

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Ríkisstjórnin kom saman til fundar í morgun til að ræða tillögur sóttvarnalæknis um hertar aðgerðir í samfélaginu í ljósi mikils fjölda smita í samfélaginu. Fundi lauk nú rétt fyrir hádegi og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra ræddu við fjölmiðla og fóru yfir stöðuna.\r\n\r\nSamkvæmt nýjum samkomutakmörkunum, sem taka gildi á miðnætti í kvöld, mega að hámarki 20 manns koma saman í stað 50 og á stærri viðburðum þar sem fólk hefur farið í hraðpróf mega nú koma 200 manns í stað 500. Líkamsræktarstöðvar, sundstaðir og skíðasvæði mega taka á móti 50% af leyfilegum hámarksfjölda en máttu áður taka á móti 75%. Þá verður einnig tveggja metra reglan tekin upp á ný. Þá sagði Willum það hafa verið línan hjá ríkisstjórninni til þessa að halda skólum opnum eins og hægt er og verður skólastarf því óbreytt að svo stöddu. Katrín sagði ekki annað hægt í þessari stöðu en að grípa til þessara ráðstafana í ljósi þess að veran sé í veldisvexti og mikil óvissa ríkir um vörn bóluefna á omíkron afbrigðið. Þá bætti hún við að þetta væru síður en svo skemmtileg tíðindi að flytja þjóðinni í aðdraganda jóla.",
  "innerBlocks": []
}
Herða sóttvarnartakmarkanir frá miðnætti - Skessuhorn