
Sýnataka vegna Covid-19. Ljósm. kgk.
286 greindust með Covid í gær
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "286 greindust með Covid-19 veiruna innanlands í gær og 27 greindust á landamærunum. Aldrei hafa fleiri verið greindir hér á landi á einum degi. Í Facebook færslu í morgun sagði Thor Aspelund, prófessor í líftölfræði við Háskóla Íslands, að tvöföldunartími Omíkron afbrigðisins vera tveir til þrír dagar. „Það er meira en við höfum nokkru sinni séð og ekki þorandi að spá hvenær viðsnúningi verði náð,“ segir Thor í færslunni. Samkvæmt heimasíðu Landspítalans eru nú 2.035 sjúklingar á Covid göngudeild og þar af eru 718 börn. Tólf liggja á Landspítalanum vegna veirunnar og er meðalaldur þeirra 58 ár. Tveir eru á gjörgæslu, annar í öndunarvél.\r\n\r\nStaðan á Vesturlandi er svipuð og í gær. Það fjölgar lítillega í einangrun á Akranesi og eru nú 25 í einangrun og 50 í sóttkví. Tíu eru í einangrun í Borgarnesi, tveir í Stykkishólmi, tveir í Grundarfirði og einn í Ólafsvík.\r\n\r\nRíkisstjórnin kom til fundar kl. 9:30 í morgun til að ræða tillögur sóttvarnalæknis um hertar aðgerðir í samfélaginu. Að fundi loknum má búast við því að Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra kynni nýjar sóttvarnarreglur.",
"innerBlocks": []
}