Sigrún Ólafsdóttir bóndi í Hallkelsstaðahlíð.

„Toppurinn er alltaf að fara í skemmtilegar hestaferðir í góðra vina hópi á góðum hesti“

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "<h4>Segir Sigrún Ólafsdóttir bóndi í Hallkelsstaðahlíð</h4>\r\n„Vertu velkomin hingað upp í fjöll,“ segir Sigrún Ólafsdóttir brosandi þegar hún tekur á móti blaðamanni Skessuhorns á heimili sínu í Hallkelsstaðahlíð í Hnappadal. Móttökurnar eru hlýlegar og Sigrún býður til sætis í stofunni. Veðrið er stillt og snjóföl yfir öllu, sem gerir útsýnið úr stofunni alveg einstaklega fallegt.\r\n\r\nSigrún er fædd og uppalin í Hallkelsstaðahlíð hjá móður sinni, ömmu og móðursystkinum. „Ég átti því alveg fullt af mömmum og pöbbum,“ segir Sigrún og brosir. „Faðir minn drukknaði í Oddastaðavatni þegar ég var rúmlega árs gömul,“ bætir hún við. Eins og svo margir af landsbyggðinni þekkja þurfti Sigrún að flytja að heiman 16 ára gömul til að fara í framhaldsskóla og flutti þá til Reykjavíkur. „Ég ætlaði alltaf að læra söðlasmíði en það var mjög erfitt að komast á samning. Ég lét það ekki stoppa mig og fór í Iðnskólann og kláraði bóklega námið. Að því loknu sá ég að ég hefði svigrúm til að taka fleiri áfanga og valdi grunndeild í trésmíði,“ segir Sigrún og bætir því við að bæði Skúli maðurinn hennar og Mummi sonur hennar eru húsasmiðir. „Svo er ég semí smiður,“ segir hún og hlær.\r\n\r\nÝtarlega er rætt við Sigrúnu Ólafsdóttur í jólablaði Skessuhorns.",
  "innerBlocks": []
}
„Toppurinn er alltaf að fara í skemmtilegar hestaferðir í góðra vina hópi á góðum hesti“ - Skessuhorn