Greta María Árnadóttir.

„Skartgripum fylgja oft miklar tilfinningar“

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "<h4>segir Greta María gullsmiður í Stykkishólmi</h4>\r\nÍ Stykkishólmi hefur Greta María Árnadóttir rekið gullsmíðaverkstæði frá því sumarið 2018. Greta er fædd í Reykjavík og bjó fyrstu árin við Leifsgötu en flutti sex ára til Danmerkur með mömmu sinni. Þær mæðgur ætluðu að búa þar í tvö ár á meðan mamma hennar var í skóla. „Pabbi varð eftir heima. Hann kunni ekki dönsku og var með góða vinnu á Íslandi,“ útskýrir Greta þegar blaðamaður Skessuhorns kíkti á verkstæðið til hennar í Smiðjunum í Stykkishólmi. Eftir tvö ár í Danmörku voru mæðgurnar ekki tilbúnar að snúa heim. Pabbi Grétu flutti þá til þeirra og hafa foreldrar hennar búið í Danmörku síðan. „Við bjuggum fyrst á svona „kollegíi“ þar sem voru margir Íslendingar og mikið um fjölskyldufólk og ég held að það hafi hjálpað mikið til svo ég myndi ekki gleyma íslenskunni,“ segir Greta.\r\n\r\nRætt er við Gretu Maríu Árnadóttur í jólablaði Skessuhorns.",
  "innerBlocks": []
}