Hafliði Aðalsteinsson hefur gert upp ófáa trébáta og viðhaldið þannig menningu íslenskrar bátasmíði.

Sjöundi ættliður bátasmiða

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "<h4>Rætt við Hafliða Aðalsteinsson tréskipasmið</h4>\r\nÞað kemur kannski ekki á óvart að Hafliði Aðalsteinsson viti sitthvað um trébáta. Honum er smíði þeirra í blóð borin, er sjöunda kynslóð trébátasmiða, og var ekki hár í loftinu þegar hann hóf að hjálpa til við smíðina. Á löngum ferli sínum hefur hann nokkuð reglulega rekist á smíði áa sinna og handleikið þannig sömu báta og þeir sem á undan honum eru gengnir. Hann segir mikilvægt að efla menntun og menningu í tengslum við íslenska trébáta, að öðrum kosti hverfi þekkingin. Sjálfur hefur hann gert sitt til að miðla þekkingunni áfram og Skessuhorn hitti á Hafliða þar sem hann var með námskeið í bátasmíði á Siglufirði.\r\n\r\nRætt er við Hafliða Aðalsteinsson tréskipasmið í jólablaði Skessuhorns.",
  "innerBlocks": []
}