{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Fiskmarkaður Íslands hf. hefur ráðið Ragnar Smára Guðmundsson sem nýjan framkvæmdastjóra félagsins. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Guðmundi Smára Guðmundssyni formanni stjórnar Fiskmarkaðs Íslands. Ragnar er fæddur og uppalinn í Grundarfirði. Undanfarin tíu ár hefur hann starfað sem fjármálastjóri hjá flutningafyrirtækinu Ragnar og Ásgeir ehf. Ragnar lauk BS.c gráðu i viðskiptafræði við Háskóla Íslands 2010. Hann er giftur Guðrúnu Hrönn Hjartardóttir og eiga þau þrjú börn. Aron Baldursson sem gegnt hefur stöðunni í rúm fimm ár lætur nú af störfum að eigin ósk.",
"innerBlocks": []
}
Ragnar Smári tekur við Fiskmarkaði Íslands - Skessuhorn