
Hreindýradróninn sem Jón Halldór hannaði og smíðaði. Með honum á myndinni eru Ingvar Garðarsson og Árni Sæberg ljósmyndari Morgunblaðsins.
Kaffiþorstinn kom honum í drónafræðin
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "<h4>Rætt við einn helsta drónafræðing landsins um drónaflug og ýmis áhugamál</h4>\r\nDrónar eru orðnir áberandi víða, meðal annars í fjölmiðlum. Það birtist varla sú frétt að ekki fylgi mynd tekin úr dróna. Drónafræðin eru ung að aldri en einn af þeim sem fróður er um dróna er Jón Halldór Arnarson. Jón Halldór lærði hátækniverkfræði í Háskólanum í Reykjavík og lauk síðan meistaragráðu í drónafræðum við háskólann í Southampton og hefur reyndar hannað þá nokkra slíka. Við settumst niður með Jóni Halldóri og forvitnuðumst um hvernig hann datt inn í drónaheiminn.\r\n\r\n„Ég var í Háskólanum í Reykjavík og aðalvandamálið okkar sem fátækra námsmanna var að kaffikostnaðurinn var hár en kaffið var hins vega fríkeypis í meistaradeildinni. Við höfðum ekki aðgang þar inn þannig að við skráðum okkur þar inn í rannsóknarvinnu fyrir ómönnuð flugför. Þannig fengum við aðgang að stofu sem var full af allskonar dóti en enginn haus til að stýra henni. Náunginn sem hafði verið að kenna þarna var farinn að kenna úti í Ameríku. Við þurftum því að finna út úr þessu sjálfir. Fyrsti dróninn sem ég kom nálægt þá varð til þegar við þrír verkfræðingar vorum í einar fjórar vikur að búa til eitthvað sem flaug mjög illa. Það var að minnsta kosti eitt bílþak sem hann lenti á og nokkrum sinnum krassaði hann á grasflötum við skólann eða úti í Öskjuhlíðinni. Maður hugsaði ekki út í það þá að þarna voru nemendur að leika sér við flugvöllinn með eitthvað sem við höfðum enga stjórn á. Ég er ekki viss um að þessu yrði vel tekið í dag.“\r\n\r\nJón Halldór segir að þegar hann var í hátæknifræðinni hafi hann farið að skoða skóla og fundið tvo skóla, annan í Bandaríkjunum og hinn í Bretlandi. „Þetta var nýtt nám og annað árið sem þetta var kennt. Þegar ég kem til Íslands aftur þá er ég með gráðu sem enginn hafði heyrt um.“\r\n\r\nRætt er við Jón Halldór Arnarson í jólablaði Skessuhorns.",
"innerBlocks": []
}