Ragnheiður Stefánsdóttir.

Heldur jólaveislu fyrir fjölskyldu og vini

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Ragnheiður Stefánsdóttir heldur úti samfélagsmiðlinum Matarlyst á Instagram og Facebook. Hún færir hér lesendum Skessuhorns gómsætar uppskriftir nú fyrir jólin en segir okkur jafnframt frá hefðum sem hún heldur fast í við undirbúning jólanna.\r\n<h4>Vildi stærsta tréð</h4>\r\nRagnheiður er Skagakona og segir að fyrir sig sé aðventan dásamlegur tími. „Notalegheitin hefjast með því að kveikja á Útvarpi Akranes, en þá kemst ég í jólagírinn. Ég man eftir mér sem lítilli stelpu þessa fyrstu helgi í aðventu. Mamma setti allt á fullt fyrir jólin, málaði veggi, skreytti og við bökuðum saman smákökur og útvarpið ómaði undir alla helgina,“ segir Ragnheiður.  „Önnur hefð frá því ég man eftir mér sem við viðhöldum enn er að við fjölskyldan förum að höggva jólatré. Ég man eftir því að ég grenjaði heil ósköp yfir því að stærsta tréð var ekki hoggið. En ég áttaði mig fljótlega á því að það þýddi ekkert, því þau tóku ætíð það tré sem þurfti að grisja í skóginum hverju sinni. Í dag er ég sjálf með gervitré en næ alltaf í greinar til þess að fá ilm í húsið.“\r\n\r\nRætt er við Ragnheiði Stefánsdóttur í jólablaði Skesshorns.",
  "innerBlocks": []
}
Heldur jólaveislu fyrir fjölskyldu og vini - Skessuhorn