Teitur Þórðarson.

Fimmtán góðir fótboltar hæfileg greiðsla

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "<h4>Rætt við Teit Þórðarson og stiklað á stóru um knattspyrnu- og þjálfaraferil hans</h4>\r\n„Það verður að hafa fyrir hlutunum og leggja sig fram til að ná tilætluðum markmiðum sínum í lífinu og þá er alveg sama hvað þú tekur þér fyrir hendur. Hafa gaman af þegar gengur vel og takast á við mótbyrinn.“ „Þetta eru orð föður míns sem ég hef haft að leiðarljósi á atvinnumannaferli mínum í knattspyrnunni. Hann sagði að þú færir ekki inn á knattspyrnuvöllinn nema að gefa allt sem þú ættir í leikinn og skildir svo allt þitt eftir inni á vellinum að leik loknum. Bara þannig munt þú bæta þig og ná árangri. Þetta gerði hann sjálfur og sömu kröfu gerði hann til mín,“ segir Teitur Þórðarson í viðtali við Skessuhorn.\r\n\r\nHér verður rætt við hann um magnaðan knattspyrnu- og þjálfaraferil hans á Íslandi, í Svíþjóð, Frakklandi, Sviss, síðan aftur í Svíþjóð, þá í Noregi, frá Noregi til Eistlands, síðan til baka til Noregs, þaðan til Íslands, síðan til Kanada og síðan aftur til baka til Noregs, Ferill sem enginn annar Íslendingur getur státað af fyrr eða síðar.\r\n\r\nTeitur vann í byrjun ferils síns fjóra Íslandsmeistaratitla með Skagamönnum áður en hann hélt í atvinnumennsku til Svíþjóðar. Varð þrívegis sænskur meistari með Öster og markahæstur í liðinu á sínu fyrsta ári hjá þeim árið 1978. Hann var svo þriðji markahæsti leikmaður frönsku deildarkeppninnar með Lens tímabilið 1981 til 1982, skoraði 19 mörk, en til gamans má geta þess að það var Michel Platini sem varð í öðru sætinu með 20 mörk. Þá var Teitur landsliðsþjálfari Eistlands árin 1995 til 2000 auk þess að þjálfa félagsliðið Flora Tallinn. Undir hans stjórn hækkaði Eistland verulega á heimslista alþjóða knattspyrnusambandsins þar sem liðið fór úr 145 sæti FIFA listans og upp í 68 sætið þ.e.a.s. upp um 77 sæti. Eftir veru hans í Eistlandi var Teiti veitt Marinland krossinn af forseta Eistlands fyrir störf sín við uppbyggingu knattspyrnunnar í Eistlandi. En viðurkenningin er veitt þeim sem skarað hafa fram úr við uppbyggingu landsins á hinum ýmsu sviðum. Hann náði einnig frábærum árangri sem þjálfari hjá Brann, Lyn og Lilleström í Noregi. Varð síðan fyrsti Íslendingurinn til þess að stýra liði í MLS deildinni í Norður Ameríku sem þjálfari Vancouver Whitecaps.\r\n\r\nÝtarlega er rætt við Teit Þórðarson í jólablaði Skessuhorns.",
  "innerBlocks": []
}
Fimmtán góðir fótboltar hæfileg greiðsla - Skessuhorn