
Þórhildur María Kristinsdóttir landvörður.
„Við þurfum að gæta þess hvernig við skiljum náttúruna eftir fyrir komandi kynslóðir“
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "<h4>segir Þórhildur María Kristinsdóttir landvörður</h4>\r\nÞórhildur María Kristinsdóttir, eða Tóta eins og hún er í daglegu tali kölluð, er fædd og uppalin í Breiðholtinu en náttúran og dýrin hafa alla tíð dregið hana til sín. 17 ára gömul árið 1998 ákvað hún því að leita að vinnu í sveit og setti auglýsingu í Bændablaðið. Hún fékk vinnu á Bjarnastöðum í Hvítársíðu og hefur ekki farið úr Borgarfirðinum síðan. Blaðamaður Skessuhorns hitti Tótu í liðinni viku á skrifstofu hennar í Reykholti í Borgarfirði en hún starfar sem Landvörður fyrir svæðið frá Steðja í Kjós og alla leið upp á Langjökul.\r\n<h4>Leið vel á Bjarnastöðum</h4>\r\nTóta ólst upp við Elliðaárnar sem efalaust er ástæðan fyrir því hversu mikið hún sækir í náttúruna. „Það hafði örugglega líka áhrif hvað foreldrar mínir ferðuðust mikið með mig sem barn. Það voru þá ekkert ferðalög yfir helgi á tjaldstæði þar sem margir voru heldur var bara pakkað vel í bílinn og haldið af stað upp á hálendi með tjald í marga daga,“ segir Tóta og hlær. Hún er mjög hrifin af dýrum, en hestum kynntist hún í gegnum afa sinn og bróður sem báðir voru með hesta þegar hún var yngri. „Ég fékk að fara á nokkur reiðnámskeið og svona og elskaði að fara á hestbak. En þegar ég kom fyrst á Bjarnastaði var sauðburður að byrja og ég var alveg logandi hrædd við kindur á þeim tíma,“ segir hún og hlær. Kindurnar vöndust fljótt og hræðslan hvarf. „Ég var líka mest bara í hestaleigunni. Upphaflega ætlaði ég bara að vinna á Bjarnastöðum yfir sumarið en ílengdist fram í nóvember. Svo kom ég aftur sumarið eftir og líka sumarið þar á eftir. Mér leið alltaf rosalega vel á Bjarnastöðum og það varð smá svona „heima“ fyrir mér. Ég fór svo í skóla á Hvanneyri og á meðan hinir nemendurnir fóru heim í fríum fór ég frekar á Bjarnastaði en til Reykjavíkur. Ég var orðin algjör heimalningur þar og á rosalega margar góðar minningar,“ segir Tóta.\r\n\r\nÝtarlega er rætt við Þórhildi Maríu Kristinsdóttur í jólablaði Skessuhorns.",
"innerBlocks": []
}