Grímshús var reist árið 1942 af útgerðarfélaginu Grímur hf.

Útgerðarbærinn Borgarnes

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Sveinn Hálfdánarson vill sýna útgerðarsögu bæjarins\r\n\r\nBorgarnes er ekki vel í sveit sett hvað útgerð varðar, þó þar séu ýmsir aðrir landkostir. Engu að síður var þar um skeið rekin blómleg útgerð og Borgnesingar áttu um tíma aflahæsta skipið á síldveiðum, hina víðfrægu Eldborg. Sagt er að sæbarðir menn, sem alist höfðu upp í útgerðarplássum víða um land, hafi furðað sig mjög á því að borgfirskir sveitastrákar hefðu skotið þeim ref fyrir rass.\r\n\r\nGrímshúsfélagið var stofnað til að varðveita þessa einstöku sögu. Á meðal þess sem félagið gerði var að endurbyggja Grímshúsið, en það var reist árið 1942. Það var útgerðarfélagið Grímur hf. sem stóð að því. Húsið á sér langa sögu og hefur gegnt ýmsum hlutverkum, meðal annars hýst hreppsskrifstofu Borgarneshrepps. Nú stendur til að koma þar fyrir sýningu, bæði á sögu staðarins og eins tengdri ginframleiðslu Martins Miller Gin.\r\n\r\nSveinn Hálfdánarson var einn af forsprökkum Grímshúsfélagsins. Hann man tímana tvenna, var um árabil forkólfur í verkalýðshreyfingunni og þekkir atvinnusögu héraðsins vel. Hann er orðinn langeygur eftir því að markmið Grímshúsfélagsins verði að að veruleika og vill sjá húsið í fullum rekstri. Miklu hafi enda verið kostað til við endurgerð þess. Fyrst og fremst vill hann þó gera útgerðarsögunni hátt undir höfði, enda er hún stórmerkileg.\r\n\r\nRætt er við Svein Hálfdánarson í jólablaði Skessuhorns.",
  "innerBlocks": []
}
Útgerðarbærinn Borgarnes - Skessuhorn