
Brynja Valdimarsdóttir.
„Réttur hvers og eins að leita uppruna síns“
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Rætt við Brynju Valdimarsdóttur um leit hennar að upprunanum\r\n\r\nSkagakonan Brynja Valdimarsdóttir vakti fyrst athygli þegar hún tók þátt í Idol Stjörnuleit árið 2004. Brynja fæddist á Srí Lanka en það var í desember árið 1985 sem móðir hennar hér á landi sótti hana sex vikna gamla og veikburða og bjó henni öruggara og betra líf. Blaðamaður Skessuhorns settist niður með Brynju á dögunum í einlægt spjall en það var fyrir sex árum síðan sem Brynja stóð á krossgötum í lífi sínu. Þá var hún að vega og meta hvort hún ætti að gefa grænt ljós á formlega upprunaleit en þá hafði hún nýlega fengið fæðingarvottorðið sitt og önnur skjöl tengd því. Foreldrar Brynju eru þau Valdimar Axelsson og Anna Ágústsdóttir og Brynja á tvo syni; Erni Loga sem er átta ára og Freystein Jaka, þriggja ára. Brynja á bróður sem er ættleiddur frá Gvatemala og er fjórum árum eldri en hún. Alls voru sex stelpur sem voru ættleiddar og komu á sama tíma á Akranes, allar fæddar árið 1985, og ólust þær allar upp á Skaganum. Brynja segir að þær hafi allar vitað af hvor annarri þegar þær voru litlar og nokkrar af þeim eru vinkonur í dag.\r\n\r\nRætt er við Brynju Valdimarsdóttur í jólablaði Skessuhorns.",
"innerBlocks": []
}