Ingibjörg Birna og Ingvar við afhendinguna. Ljósm. af vef Reykhólahrepps

Myndarleg gjöf frá Lions í Reykhólahreppi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á dögunum afhenti Ingvar Samúelsson Reykhólahreppi fyrir hönd Lions, myndvarpa, rafstýrt sýningartjald og hljóðkerfi ásamt uppsetningu en frá þessu segir á vef Reykhólahrepps. Búnaðinum var komið fyrir í matsal Reykhólaskóla sem er oft notaður fyrir fundi en frá þessu segir á vef hreppsins. Tilgangur gjafarinnar er að hluta til að eiga þess kost að bjóða upp á aðstöðu við fjölmennar athafnir eins og til að mynda jarðarfarir, þegar fjöldi gesta er slíkur að ekki er pláss í kirkjunni fyrir alla.\r\n\r\nIngibjörg Birna Erlingsdóttir sveitarstjóri tók á móti gjöfinni fyrir hönd Reykhólahrepps og þakkaði Lions kærlega fyrir þessa góðu gjöf, hún ætti eftir að koma sér mjög vel og bæta fundaraðstöðu töluvert fyrir sveitarfélagið og fleiri aðila.",
  "innerBlocks": []
}