Minni urðun í Borgarbyggð í ár en gert var ráð fyrir
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á fyrstu tíu mánuðum ársins 2021 voru send samtals 271 tonn til urðunar frá heimilum í Borgarbyggð en þetta kemur fram á vefsíðu Borgarbyggðar. Séu þessar tölur bornar saman við árið 2020 er um að ræða 100 tonnum minna en á sama tíma í fyrra en þá höfðu 369 tonn verið send til urðunar. Árið 2019 nam úrgangur til urðunar frá heimilum 479 tonnum á fyrstu tíu mánuðum ársins og því er um að ræða verulega minnkun á úrgangi til urðunar á milli ára.\r\n\r\nÞess má geta að á fyrstu tíu mánuðum þessa árs hafa íbúar í Borgarbyggð skilað 107 tonnum af lífrænum úrgangi til endurvinnslu. Ekki er hægt að bera saman við heildarmagn á síðasta ári þar sem söfnunin hófst í apríl 2020. Endurvinnsluúrgangur úr grænu tunnunni er um það bil 144 tonn á fyrstu tíu mánuðum ársins samanborið við 162 tonn á sama tíma árið 2020.\r\n\r\nÍbúar Borgarbyggðar eru að flokka í mun meira mæli en áður sem hefur leitt til minnkunar á sorpi til urðunar. Um er að ræða jákvæða þróun og því er mikilvægt fyrir íbúa sveitarfélagsins að halda áfram á þessari braut. Samkvæmt stefnu um hringrásarhagkerfi skal úrgangur sem fer í urðun vera að hámarki 10% af heildarúrgangi fyrir lok árs 2034. Í dag er verið að setja 35% í urðun af þeim heimilisúrgangi sem fellur til frá heimilum.",
"innerBlocks": []
}