Alexandra Dögg Sigurðardóttir.

Ævintýraþráin hefur dregið Alexöndru um allan heim og nú síðast í Grundarfjörð

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "„Ég kem upphaflega frá Hornafirði en flutti til Reykjavíkur átta ára gömul. Á framhaldsskólaaldri byrjaði ég svo á að flakka um heiminn og bjó til dæmis í Mexíkó í nokkur ár en nú síðast bjó ég í Mjóafirði,“ segir Alexandra Dögg Sigurðardóttir í Grundarfirði. Alexandra flutti ásamt manninum sínum, Alexis Tavera Lopez í Grundarfjörð í lok sumars þar sem þau tóku við rekstri á Stöð Guesthouse. Alexandra byrjaði flakkið um heiminn 18 ára gömul þegar hún fór í sjálfboðastarf eitt sumar til Costa Rica. „Mig langaði að læra spænsku en langaði samt ekki til Spánar. Ég varð strax heilluð af landinu og þessari heitu menningu, salsa og öllu því. Ég varð bara forfallin og langaði strax aftur,“ segir hún. Eftir framhaldsskólanám fór hún í Háskóla Íslands þar sem hún lærði viðskiptafræði. Hún nýtti hvert tækifæri til að ferðast og fór m.a. í skiptinám til Ástralíu. „Þar var geggjað að vera. Ástralar eru mjög skemmtilegir og landið æðislegt,“ segir Alexandra.\r\n\r\nRætt er við Alexöndru Dögg Sigurðardóttur í jólablaði Skessuhorns.",
  "innerBlocks": []
}
Ævintýraþráin hefur dregið Alexöndru um allan heim og nú síðast í Grundarfjörð - Skessuhorn