
Gunnar Sigurðsson, á skrifstofunni sinni í Olís á Akranesi. Ljósm. vaks.
Hafnarsjoppunni á Akranesi lokað í febrúar á næsta ári
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Miklar breytingar verða gerðar á flestum útibúum Olís á landsbyggðinni í febrúar á næsta ári, en um þetta var fjallað í Skessuhorni í síðastu viku. Megin breytingin felst í því að umbreyta verslunum í afgreiðslulagera og söluskrifstofur og því verða útibúin rekin á aðeins öðru formi en hingað til. Á Vesturlandi eru tvö útibú; á Akranesi og í Ólafsvík. Skessuhorn heyrði í Gunnari Sigurðssyni, útibússtjóra Olís á Akranesi, til að vita hverjar helstu breytingarnar yrðu á Akranesi.\r\n\r\nGunnar segir að tveimur starfsmönnum í sjoppuhlutanum á Suðurgötu á Akranesi hafi verið sagt upp og að versluninni verði lokað 1. febrúar á næsta ári. Stóra breytingin er sú að Hafnarsjoppunni verði lokað og við það breytist verslunin í olíusjoppu. Opnunartíminn verði styttur en það sé ekki fast í hendi hvernig það verði. Áfram verða tveir starfsmenn til vors að minnsta kosti, María Sigurjónsdóttir og Stefán Jónsson, ásamt Gunnari, sem formlega hættir störfum 1 apríl, en verður viðloðandi fyrirtækið áfram. „Við erum með stóran lager og það þarf að grynnka á honum. Meiningin er að eitthvað af honum fari upp eftir í Olís Nesti á Esjubraut en það á eftir að koma betur í ljós. Við erum með of mörg vörumerki í sumum vöruflokkum eins og sápum og þess háttar en segja má að þetta sé sama breyting og gerðist hjá ESSO og Shell á sínum tíma. ESSO var með stórt útibú á Breið og Shell á Bárugötunni en nokkrir áratugir eru síðan þessum stöðum var lokað. Við erum að fara í sama form og var á þessum stöðum þá, við verðum eingöngu með rekstrarvörur fyrir útgerðirnar, bílaverkstæðin, bændur og byggingarverktakana en við lokum ekki.“\r\n\r\nGunnar segir að auðvitað hafi mikið breyst hérna um árið þegar meðal annars togaraútgerð hætti starfsemi í plássinu og segir að á þeim tíma hafi hann verið með fjóra togara í viðskiptum: „Nú hrekkur maður við ef það kemur stærri en tíu tonna bátur í höfnina. Einn togari tekur í einni ferð svona hálfs árs sölu á stað eins og þessum, hvað þá ef þeir eru fjórir eða fimm. En ég tel að við séum með þjónustu hér sem er mjög mikilvæg og nauðsynleg, við erum að keyra daglega alls kyns vörur út um allt Vesturland og að mínu mati veitum við mjög góða þjónustu. Olís hefur fullt erindi hér á Skaganum, ég hef tröllatrú á því,“ segir Gunnar að lokum, sem í vor hefur starfað í 40 ár hjá Olís.",
"innerBlocks": []
}