{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Netglæpir, eða innrás í tölvur fólks og fyrirtækja, eru mjög að færast í vöxt. Í vikunni var sagt frá því í frétt Skessuhorns að aðili hafi komið inn á lögreglustöð á Vesturlandi í nýliðinni viku og tilkynnt að teknar hefðu verið tæpar 260 þúsund krónur út af bankareikningi hans í heimildarleysi. Viðkomandi sagðist hafa fengið tölvupóst um að hann ætti pakka á pósthúsinu. Í póstinum voru leiðbeiningar og hlekkur sem hann smellti á enda fullviss um að sending væri raunverulega að berast frá Póstinum. Svo reyndist hins vegar ekki vera og daginn eftir hafði framangreind fjárhæð verið dregin af reikningnum. Haft var samband við greiðslukortafyrirtæki sem lokaði reikningnum en þar sem um debetkort var að ræða getur orðið snúið að ná slíku til baka, jafnvel útilokað. Lögregla segir í samtali við Skessuhorn að slíkum tilkynningum fjölgi stöðugt og hvetur fólk til að vera á varðbergi gagnvart slíkum póstum.\r\n\r\n<strong>„Komdu aftur til mín..“</strong>\r\n\r\nÍ tvígang í þessari viku hefur starfsfólk Skessuhorns fengið tölvupósta sem við fyrstu sýn eru mjög trúverðuglegir. Meintir sendendur voru stjórnarformenn í fyrirtækjum sem raunverulega eru til og jafnvel er búið að sækja rafræna undirskrift þeirra, lógó og slíkt. Móttakandi tölvupóstsins er beðinn að opna viðhengt skjal þar sem óskað er staðfestingar á „endurskoðuðum samningi.“ Reyndar endar orðsendingin á; „..komdu aftur til mín,“ sem er ekki jafn trúverðugt og vísast má rekja til slælegrar þekkingar Google translate og tölvuþrjótanna á íslensku. Vísast er að ef viðhengið væri opnað myndi tölvuþrjóturinn fá aðgang inn í tölvu viðkomandi starfsmanns með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Meðfylgjandi mynd er ætlað að sýna hversu trúverðug skilaboðin geta verið. Þar er um meint skilaboð að ræða frá stjórnarformanni útgerðarfélagsins Odda hf. Í öðru tilviki fengu starfsmenn blaðsins nákvæmlega sambærilegan póst frá Gísla Gíslasyni stjórnarformanni Breiðar nýsköpunarseturs á Akranesi. Gísli segir í samtali við Skessuhorn að búið sé að rekja tölvusvindl í hans nafni til breskra tölvuþrjóta. Hafi þeir komist yfir netföng og slíkt í gegnum tölvuárás á Brim.\r\n\r\nHér er einungis um fá dæmi að ræða, en gefa mynd af þeim hættum sem leynast í tölvusamskiptum þegar þrjótar hasla sér völl.",
"innerBlocks": []
}
Netglæpir taka á sig nýjar og verri myndir - Skessuhorn