
Hér má sjá spálíkan fyrir stöðuna klukkan 15:00 á morgun. Heimild: windy.com
Ekkert ferðaveður víða um land eftir hádegi á morgun
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Spáð er hvassviðri og rigningu víða um land á morgun, laugardag, þegar kröpp lægð fer yfir landið. Það gengur í suðaustan storm víða um land með hlýju veðri. Talverð eða mikil rigning verður sunnan- og vestantil á landinu. Spáð er að vindhviður við fjöll fari í 35-40 m/s frá hádegi og fram á kvöldið á Kjalarnesi og við Hafnarfjall, sem og við Eyjafjöll. Þá verður varasamt um miðjan daginn að vera á ferð á Reykjanesbrautinni, þar sem vindur fer í 20-25 m/s þvert á veg og mikil bleyta verður á vegi.\r\n\r\nGul viðvörun er því í gildi fyrir höfuðborgarsvæðið, Suðurland, Faxaflóa, Breiðafjörð, Strandir, Norðurland vestra, Norðurland eystra og Austurland að Glettingi. Nokkuð misjafnt er hversu lengi viðvörun er í gildi fyrir hvert spásvæði og er fólk hvatt til að kynna sér veðurspá og -lýsingar á vedur.is áður en lagt verður í ferðalög.",
"innerBlocks": []
}