{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Boðað hefur verið til íbúafundar um sameiningarviðræður Eyja- og Miklaholtshrepps og Snæfellsbæjar. Fundurinn verður haldinn í félagsheimilinu Breiðabliki næstkomandi þriðjudagskvöld og verður honum einnig streymt á Facebooksíðu Snæfellsbæjar. Á fundinum mun samstarfsnefnd um sameiningu þessara sveitarfélaga kynna stöðu verkefnisins og gefst þátttakendum tækifæri til að taka þátt í umræðum og leggja fram spurningar.\r\n\r\nAllir eru velkomnir á fundinn en einnig verður hægt að taka þátt í umræðum með rafrænum hætti. Nánari upplýsingar er að finna á vef Snæfellsbæjar, snb.is.",
"innerBlocks": []
}
Boða til íbúafundar um sameiningarviðræður - Skessuhorn