Vinnustaðakeppnin „Reddum málinu“ stendur nú yfir

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Vinnustaðakeppnin „Reddum málinu“ hófst síðastliðinn mánudag og stendur til 16. nóvember. Markmið keppninnar er að safna sem flestum raddsýnum, þ.e. lesnum setningum, á íslensku. Keppt verður í þremur flokkum, eftir stærð vinnustaða og verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin í hverjum flokki.\r\n\r\nÍ Reddum málinu keppast fyrirtæki og stofnanir við að lesa texta í gegnum tölvu eða snjalltæki. Um er að ræða stuttar setningar á íslensku sem fara í gagnagrunn Samróms sem hægt er að nota til að kenna tækjum og tölvum að skilja íslensku.  Keppnin er samstarfsverkefni Almannaróms, Háskólans í Reykjavík og Símans og fer fram á vefnum reddummalinu.is.\r\n\r\nÍ fréttatilkynningu vegna keppninnar er bent á að tæknin teygi anga sína inn í alla kima samfélagsins, við erum orðin háð henni við leik og störf. Þróun tallausna í snjalltækjum er hröð og ljóst að tæknin muni snerta á enn fleiri þáttum okkar daglega lífs í náinni framtíð.\r\n\r\nÁ síðustu árum hefur orðið bylting í raddtækni og því hvernig við notum röddina til þess að stjórna tækninni. Íslenskan á undir högg að sækja vegna þeirra öru tæknibreytinga en mörg okkar eiga nú þegar samskipti við tölvur og ýmis tæki á erlendu máli. Fólk mun nota röddina í auknum mæli til að stýra hvers kyns tækjum og tólum en vandinn er sá að tækin skilja ekki íslensku. Þess vegna er mikilvægt að missa ekki af lestinni og nú er hafin vinna við stórt samstarfsverkefni til þess að gera íslensku gjaldgenga í tölvum og tækjum. Að því koma íslenskir háskólar, stofnanir, fyrirtæki og félagasamtök, sem munu á næstu árum þróa nauðsynlega innviði fyrir hugbúnað sem skilur og talar íslensku. Samrómur verður hluti af þessu verkefni, opið gagnasafn raddsýna fyrir íslensku sem hver sem er getur notað til þess að þróa sínar máltæknilausnir. Með þessu er reynt að tryggja öryggi íslenskunnar á stafrænum tímum.\r\n\r\nSkráning í keppnina fer fram hér:<a href=\"https://reddummalinu.is\"> https://reddummalinu.is</a>",
  "innerBlocks": []
}
Vinnustaðakeppnin „Reddum málinu“ stendur nú yfir - Skessuhorn