{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "„Við úthlutum miðvikudaginn 24. nóvember frá klukkan 12:30- 16:30 að Bárugötu 8-10 (þar sem HB Grandi var), það er gengið inn um aðaldyrnar að framanverðu. Tekið er á móti umsóknum dagana 15. og 17. nóvember frá kl. 11-13 í síma 859-3000 og á netfanginu <a href=\"mailto:maedrastyrkurakranes@gmail.com\">maedrastyrkurakranes@gmail.com</a> Vinsamlegast sækið um tímanlega því við verðum að panta matinn á fimmtudaginn 18. nóvember og ekki hægt að bæta við eftir það,“ segir í tilkynningu frá Mæðrastyrksnefnd Akraness.\r\n\r\n„Einungis nýir umsækjendur þurfa að skila inn gögnum núna en það er búsetuvottorð sem fæst á skrifstofu Akraneskaupstaðar og staðgreiðsluskrá en hana má nálgast á vef rsk.is eða á skrifstofunni hjá þeim. Það má skila inn gögnunum rafrænt eða setja þau í umslag og merkja „mæðrastyrksnefnd“ og setja þau inn um lúguna í húsi Rauða krossins að Skólabraut 25 a. Vinsamlegast ekki sækja um facebook skilaboðum.\r\n\r\nÞeir sem hafa ekki skilað inn gögnum síðan í nóvember og desember á síðasta ári þurfa að skila inn gögnum fyrir jólaúthlutunina sem fer fram 16. desember. Það verður auglýst nánar í byrjun næstu viku. Einnig má sækja um jólaúthlutunina um leið og nóvemberúthlutunina.“",
"innerBlocks": []
}
Nóvember úthlutun Mæðrastyrksnefndar Akraness - Skessuhorn