Gagnrýndu launahækkanir sviðsstjóra

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í umræðum um fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar á bæjarstjórnarfundi sem haldinn var á þriðjudaginn urðu meðal annars nokkrar umræður um launahækkanir til æðstu embættismanna Akraneskaupstaðar. Lögðu sjálfstæðismennirnir Rakel Óskarsdóttir, Sandra M. Sigurjónsdóttir og Einar Brandsson fram bókun þar sem ákvörðun um mikla launahækkun til æðstu embættismanna Akraneskaupstaðar var gagnrýnd. Um væri að ræða prósentuhækkun sem erfitt væri að finna fordæmi fyrir í rekstri bæjarfélagsins og sendi röng skilaboð inn í komandi kjarasamningsviðræður við stóran hluta starfsmanna kaupstaðarins. Í bókuninni er jafnframt bent á að laun og tengd gjöld hafi hækkað hraðar en útsvarstekjur á undanförnum árum og að í sögulegu samhengi hafi þau aldrei verið hærri en árið 2020 hjá Akraneskaupstað og hafi verið þau hæstu sem sáust á þeim tíma hjá sveitarfélögum á Íslandi. Að lokum segir í bókuninni: „Ákvörðun um launahækkun til örfárra starfsmanna skýtur því skökku við og er með öllu taktlaus þegar verkefni bæjarstjórnar er að auka framlegð í rekstri öllum til hagsbótar.“\r\n\r\nValgarður Lyngdal Jónsson, fulltrúi Samfylkingar og forseti bæjarstjórnar, og Elsa Lára Arnardóttir, fulltrúi lista Framsóknar og frjálsra og varaforseti bæjarstjórnar, lögðu fram aðra bókun um mikilvægi þess að hækka laun sviðsstjóra með hliðsjón af álagi og unnum yfirvinnustundum þeirra. Í greiningu sem unnin hafi verið komi fram að meðaltals yfirvinnustundir sviðsstjóra hjá Akraneskaupstað eru rúmlega 50 stundir á mánuði en þeir hafa ekki fengið greitt fyrir þá vinnu.\r\n\r\n<strong>Sviðstjórar með 392 þúsund krónum lægri laun</strong>\r\n\r\nSamkvæmt bókuninni var í tillögu bæjarfulltrúa Samfylkingar og Framsóknar og frjálsra samþykkt að greiða 16 yfirvinnustundir á mánuði ofan á grunnlaun sviðsstjóra og með þessu væri verið að koma á móts við það umfang og álag sem felst í viðkomandi störfum. Jafnframt er vísað í greiningu Haraldar Líndals Haraldssonar sem framkvæmd var í september 2020 á launakjörum sviðsstjóra hjá níu sveitarfélögum. Í henni komi fram að hvort sem miðað var við fámennari eða fjölmennari sveitarfélög þá voru laun sviðsstjóra hjá Akraneskaupstað mun lægri heldur en meðaltalslaun fyrir sambærileg störf hjá öðrum sveitarfélögum. Í bókuninni segir að mismunurinn á launum sviðsstjóra Akraneskaupstaðar og meðaltalslaunum sviðsstjóra hjá öðrum sveitarfélögum hafi verið um 392 þúsund krónur samkvæmt greiningu Haraldar. Sú tillaga sem bæjarfulltrúar Samfylkingar og Framsóknar og frjálsra samþykktu felur í sér að ganga hluta leiðar í að jafna þennan launamun og nemur launahækkunin nú um 185 þúsund krónum.\r\n\r\nBæjarstjórn samþykkti að vísa fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar vegna ársins 2022 og þriggja ára áætlun vegna tímabilsins 2023 til og með 2025, ásamt meðfylgjandi tillögum, til síðari umræðu í bæjarstjórn sem fer fram þriðjudaginn 14. desember.",
  "innerBlocks": []
}
Gagnrýndu launahækkanir sviðsstjóra - Skessuhorn