Formgalli reyndist á útboði um endurskoðun aðalskipulags
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á fundi skipulags- og byggingarnefndar Borgarbyggðar 5. nóvember síðastliðinn voru lögð fram tilboð sex hönnunarstofa í endurskoðun aðalskipulags Borgarbyggðar fyrir árin 2010-2022. Allar þessar hönnunarstofur höfðu kynnt tillögur sínar á fundi í Hjálmakletti 14. október síðastliðinn. Tilboð voru svo opnuð í verkið næsta dag. Stofurnar sem buðu í verkið voru Landlínur, VSÓ, Verkís, Landmótun, Alta og Efla.\r\nÁ fundi nefndarinnar síðastliðinn föstudag þakkaði skipulags- og byggingarnefnd stofunum fyrir kynningarnar. Samkvæmt heimildum Skessuhorns reyndist tilboð Landlína lægst í verkið, en á það mun hins vegar ekki reyna því formgalli reyndist á framkvæmd útboðsins. Í fundargerð skipulags- og byggingarnefndar segir: Í kjölfar þess að tilboð í vinnu við gerð aðalskipulags voru opnuð bárust athugasemdir frá Samtökum iðnaðarins, f.h. eins bjóðanda, um að sveitarfélaginu bæri að bjóða vinnuna út í almennu útboði. „Aflað var álits Ríkiskaupa á réttmæti athugasemdanna og í kjölfar þess tekur skipulags- og byggingarnefnd ákvörðun um að hafna öllum tilboðum og bjóða verkið út í almennu útboði,“ segir í bókun nefndarinnar.",
"innerBlocks": []
}
Formgalli reyndist á útboði um endurskoðun aðalskipulags - Skessuhorn