Varð fyrir barðinu á netglæpamönnum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Aðili kom á lögreglustöð í landshlutanum í nýliðinni viku og tilkynnti að teknar hefðu verið tæpar 260 þúsund krónur út af bankareikningi hans í heimildarleysi. Hann sagðist hafa fengið tölvupóst um að hann ætti pakka á pósthúsinum. Í póstinum voru leiðbeiningar og hlekkur sem hann smellti á enda fullviss um að sendingin væri frá Póstinum. Svo reyndist ekki vera og daginn eftir hafði framangreind fjárhæð verið dregin af reikningnum. Haft var samband við greiðslukortafyrirtæki sem lokaði reikningnum en þar sem um debetkort var að ræða getur verið snúið að ná slíku til baka. Lögregla segir að slíkum tilkynningum fjölgi stöðugt og hvetur fólk til að vera á varðbergi gagnvart slíkum póstum.",
  "innerBlocks": []
}
Varð fyrir barðinu á netglæpamönnum - Skessuhorn