Freydís og Steinunn þegar þær afhentu Krabbameinsfélagi Akraness og nágrenni ágóða af sölu kerta í október. Ljósm. aðsend

Styrktu Krabbameinsfélag Akraness og nágrennis með kertasölu

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Freydís Björg Óttarsdóttir og Steinunn Hallgrímsdóttir á Akranesi hafa í faraldrinum verið að steypa kerti sem þær selja í gegnum Facebook eða fyrir framan Bónus á Akranesi. Í október steyptu þær kerti sem voru í laginu eins og kvenmannslíkami en í stað annars brjóstsins var slaufa. Kertin seldu þau til styrktar Krabbameinsfélagi Akraness og nágrennis og söfnuðu 100 þúsund krónum sem þær afhentu félaginu í byrjun þessa mánaðar. Blaðamaður Skessuhorns kíkti í heimsókn til Freydísar fyrir helgi og ræddi við hana um kertagerðina.\r\n\r\n<img class=\" wp-image-48731 alignleft\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/11/Styrktu-Krabbameinsfelag-Akraness-og-nagrennis-med-kertasolu_3-600x400.jpg\" alt=\"\" width=\"195\" height=\"130\" />„Það var nú Steinunn sem byrjaði á að gera svona kerti en þegar ég sá þetta hjá henni langaði mig að læra og við byrjuðum að gera þetta saman. Steinunn er mikill föndrari og heklar mikið. Ég hef alltaf haft gaman að því að föndra og gert það svona annað slagið en í Covid hef ég verið að föndra mikið meira. Við ákváðum að fara saman í þessa kertagerð fyrir svona hálfu ári og pöntuðum okkur nokkur form sem við erum að nota,“ segir Freydís og sýnir blaðamanni hvernig kerti þær eru að gera, en formin eru til dæmis karlmannslíkami, kvenmannslíkami, líkami ófrískrar konu og konu með barn á brjósti. Auk þess gera þær líka kerti í glösum. En öll kertin sem þær nota eru með ilm. „Við tökum á móti öllum kertaafgöngum hjá fólki en svo kaupum við líka kerti sem við bræðum yfir vatnsbaði og hellum í formin. Oft erum við að nota ilmkerti en ef við erum með lyktarlaust vax notum við ilmdropa sem við setjum í það,“ segir Freydís.\r\n\r\n<em>Sjá nánar í Skessuhorni vikunnar.</em>\r\n\r\n&nbsp;",
  "innerBlocks": []
}
Styrktu Krabbameinsfélag Akraness og nágrennis með kertasölu - Skessuhorn