Matarbíllinn sem verður á ferðinni um næstu helgi.

Matarmarkaður á ferð um landshlutann um næstu helgi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Matarhátíð sem halda átti á Hvanneyri næstkomandi laugardag hefur verið frestað vegna fjölda smita í samfélaginu. Hátíðin verður að sögn skipuleggjenda haldin síðar og verða þá viðurkenningar fyrir Askinn veittar og önnur dagskrá sem búið var að skipuleggja „vonandi fyrir vorið,“ segir Margrét Björk, einn skipuleggjandi hátíðarinnar aðspurð um hvenær orðið gæti af viðburðinum. „En við erum ekki tilbúin að beygja okkur í duftið og fara bara heim og loka á eftir okkur. Við ætlum að gera það besta úr aðstæðum og í stað matarhátíðar ætlum við, í samstarfi við matarframleiðendur á Vesturlandi, að prófa að vera með farandmatarmarkað. Við ætlum að fara í bílalest og keyra um landshlutann og í stað þess að stefna hópi fólks saman á Hvanneyri förum við með markaðinn til fólksins og bjóðum upp á vestlenska matvöru beint úr bíl,“ segir Margrét. Enn er verið að setja saman dagskrá fyrir bílalestina, enda fyrirvarinn skammur. „Ég held líka að þetta hafi ekki verið gert áður,“ segir Margrét Björk.\r\n\r\nVeisla á Vesturlandi er enn í fullum gangi en það eru allskonar matartengdir viðburðir sem haldnir verða allan nóvember í landshlutanum. Hægt er að finna upplýsingar um þá viðburði og matarbílalestina á matarhatid.is. „Matur er okkar megin allan nóvember og nóg um að vera. En þetta eru viðburðir þar sem hver og einn passar upp á sig og sínar persónulegu sóttvarnir. Þetta verður að vera ábyrgð okkar allra og allir að leggja sitt að mörkum til að láta hlutina ganga vel“ segir Margrét. Allar nánari upplýsingar eru að finna á matarhatid.is",
  "innerBlocks": []
}
Matarmarkaður á ferð um landshlutann um næstu helgi - Skessuhorn