Logaland í Borgarfirði.

Lyfjakokteill Önnu Heiðu leiddi til sigurs

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Mánudagskvöldið 8. nóvember spilaði Bridgefélag Borgarfjarðar fyrsta kvöld af þremur í aðaltvímenningi ársins. Í Logaland mættu 12 pör og var ákveðið að binda sig ekki við mætingu þeirra mótið út, heldur að spila þetta sem þrjú stök kvöld og reikna svo í lokin hæsta samanlagða skor. Því geta spilarar komið næstu kvöld óháð því hvort þeir mættu fyrsta kvöldið. En til að vinna til verðlauna þarf að sjálfsögðu að mæta þrisvar.\r\n\r\nEn að spilamennskunni. Spilaður var barometer, sjö umferðir og fjögur spil í umferð. Anna Heiða í Múlakotshjáleigu reyndi án árangurs að hringja sig inn veika fyrir kvöldið, makker hennar Ingimundur hlustaði ekki á slíkt svo hún mætti undir áhrifum hinna ýmsu verkjalyfja. Sem betur fer var ekkert lyfjaprófað þetta kvöldið. En í þessu ástandi spilaði hún betur en nokkur annar. Kom í mark með 63,6% og efsta sætið bæði í opnum flokki og flokki blandaðra para. Næstir komu eilífðar ungstirnin Heiðar í Múlakoti og Logi í Steinahlíð með 61,1% og í þriðja sæti endaði splunkunýtt stjörnupar; Sveinbjörn nautahirðir og Guðni rafvirki í Grundarfirði. Þeirra skor var upp á 60,4%. Eins og stundum áður fengu aðrir minna.\r\n\r\nÞess má geta að þegar kærufrestur mótsins var við það að renna út hringdi áðurnefndur nautahirðir og kærði niðurstöðu í einu spilinu. „Það er ekki hægt að ná 12 slögum,“ sagði hann og skor var leiðrétt. Það undarlega í málinu var hins vegar að hann fækkaði eigin slögum og lækkaði því eigið skor!  Næsta mánudag eru allir velkomnir, að vanda hefst spilamennskan klukkan 20:00.",
  "innerBlocks": []
}
Lyfjakokteill Önnu Heiðu leiddi til sigurs - Skessuhorn