Lítil breyting á fjölda smitaðra milli daga á Vesturlandi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í gær var enn eitt kórónuveirusmitametið slegið á landsvísu þegar 178 voru greindir með smit og hafa ekki verið fleiri frá upphafi faraldursins fyrir tæpum tveimur árum.\r\n\r\nLögreglan á Vesturlandi var nú rétt í þessu að birta samantekt um fjölda smitaðra og í sóttkví á Vesturlandi. Þar má sjá að óveruleg breyting er milli daga og mögulega er því þessi nýjasta bylgja búin að ná hámarki sínu í landshlutanum. Á Akranesi fjölgar um einn í einangrun, eru nú 133 og 127 að auki í sóttkví. Í Borgarnesi fjölgar sömuleiðis um einn; eru nú 25 og að auki 23 í sóttkví. Í Grundarfirði eru átta í einangrun og 40 í sóttkví. Loks eru í Ólafsvík þrír í einangrun og fimm í sóttkví. Enginn er nú með veiruna í umdæmi heilsugæslu HVE í Búðardal og í Stykkishólmi. Þrír eru í sóttkví í Dölum og einn í Stykkishólmi.",
  "innerBlocks": []
}
Lítil breyting á fjölda smitaðra milli daga á Vesturlandi - Skessuhorn