Grjótkrabbi er vaxandi auðlind við strendur landsins

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Tveir bátar á Akranesi, Ingi Rúnar AK-35 og Emilía AK-57, hafa í nokkur ár, hluta úr ári, verið gerðir út til veiða á grjótkrabba. Aflinn hefur farið stigvaxandi með hverju árinu. Á síðasta ári var afli þessara tveggja báta rúmlega átta og hálft tonn og það sem af er þessu ári er hann orðinn tæp 36 tonn. Í Skessuhorni sem kom út í dag er rætt við útgerðarmennina sem stunda tilraunaveiðar á nýrri landnemategund við ströndina, veiða lifandi krabba í gildrur, eða klaustur, og flytja út.",
  "innerBlocks": []
}
Grjótkrabbi er vaxandi auðlind við strendur landsins - Skessuhorn