
2. bekkur í Brekkubæjarskóla var meira en til í hrekkjavökuna. Ljósm. vaks
Fjör á Hrekkjavöku í grunnskólunum á Akranesi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Það var allskonar hryllingur í gangi þegar Blaðamaður Skessuhorns kíkti í morgunsárið í heimsókn í Brekkubæjarskóla og Grundaskóla. Flest börnin höfðu haft mikið fyrir því að líta sem hræðilegast út þegar þau mættu í skólann í morgun og blaðamanni leið alls ekki vel þegar hann var á vappi um ganga skólans. Hann náði þó að festa á myndir nokkrar hryllingsverur og náði svo rétt svo að sleppa lifandi út frá öllum þessum skrímslum. Hrekkjavakan nær líklegast hámarki á sunnudaginn þegar til að mynda verður fjölskyldutími með hrekkjavökuívafi á Smiðjuloftinu og þá geta börn gengið í merkt hús á Akranesi seinnipartinn milli 17-19 og fengið grikk eða gott. Mesta spennan er þó fyrir Hryllingsvölundarhúsinu sem verður á vegum Byggðasafnsins og er staðsett í Hafbjargarhúsinu á Breið og verður fjörið þar milli klukkan 19-21. Gleðilegan hrylling!\r\n\r\n<img class=\"alignnone size-medium wp-image-48403\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/10/Fjor-a-Hrekkjavoku-i-grunnskolunum-a-Akranesi1-600x450.jpg\" alt=\"\" /> <img class=\"alignnone size-medium wp-image-48405\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/10/Fjor-a-Hrekkjavoku-i-grunnskolunum-a-Akranesi2-600x450.jpg\" alt=\"\" /> <img class=\"alignnone size-medium wp-image-48406\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/10/Fjor-a-Hrekkjavoku-i-grunnskolunum-a-Akranesi3-600x450.jpg\" alt=\"\" /> <img class=\"alignnone size-medium wp-image-48407\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/10/Fjor-a-Hrekkjavoku-i-grunnskolunum-a-Akranesi4-600x450.jpg\" alt=\"\" />",
"innerBlocks": []
}