Vill þrýsta á samgöngubætur

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Skessuhorn sló í byrjun vikunnar á þráðinn til nýrra þingmanna Norðvesturkjördæmis og spurði út í úrslit kosninganna og hver væru helstu verkefni næsta kjörtímabils. Bjarni Jónsson, nýr þingmaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í Norðvesturkjördæmi segir: „Það er margt athyglisvert við niðurstöður þessara kosninga og ég held að þær sýni að fólk hefur verið ánægt með störf Katrínar Jakobsdóttur sem forsætisráðherra og hvernig hún hefur leitt þessa ríkisstjórn. Sjálfur er ég á margan hátt ánægður með þessar niðurstöður fyrir okkar hönd. Að sjálfsögðu hefðum við viljað fá meira og njóta betur uppskeru þeirra verka sem við höfum unnið. En fyrir mig persónulega er ég auðmjúkur fyrir þessu verkefni fram undan og staðráðinn í að standa mig vel og vera til taks fyrir alla í mínu kjördæmi.“\r\n\r\nAðspurður segist Bjarni vilja leggja áherslu á stórátak í samgöngubótum á kjörtímabilinu. „Ég vil fylgja því máli eftir. Ég vil einnig vinna að bættri heilbrigðisþjónustu og öðrum grundvallarmálum. Ég vil skjóta styrkum stöðum undir landbúnaðinn og verja sjávarauðlindir betur. Ég er rosalega gamaldags í þessu bara,“ segir Bjarni og hlær. „Það er margt sem þarf að gerast í kjördæminu og margt sem þarf meiri athygli og stuðning. En það er líka margt jákvætt búið að gera víða í kjördæminu,“ bætir hann við.\r\n\r\nSpurður hvaða mál hann vilji taka fyrir fyrst af öllu sem nýr þingmaður segir Bjarni: „Ég vil byrja á byrjuninni, að þrýsta á samgöngubætur sem hafa setið á hakanum of lengi. Það er líka margt í þeim efnum sem virðist hafa gleymst. Það þarf ekki alls staðar að ráðast í stórar breytingar. Það er víða þar sem þarf bara lítið að gera svo það verði til mikilla bóta,“ segir Bjarni Jónsson þingmaður Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi.",
  "innerBlocks": []
}
Vill þrýsta á samgöngubætur - Skessuhorn