
Frá endurtalningu atkvæða á Hótel Borgarnesi síðastliðinn sunnudag. Ljósm. mm.
Framkvæmd talningar í NV kjördæmi kærð til lögreglu
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Karl Gauti Hjaltason frambjóðandi Miðflokksins í Suðurkjördæmi hefur sent kæru til Lögreglunnar á Vesturlandi vegna framkvæmdar talningar á atkvæðum í Norðvesturkjördæmi um liðna helgi. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu Vísis hefur lögreglan móttekið kæruna. Í fjölmiðlum í gær kom fram að Karl Gauti telur lögreglu best fallna til að rannsaka og upplýsa um þá atburðarás sem fór fram við geymslu og talningu atkvæða í Borgarnesi á sunnudaginn þegar ákveðið var að telja atkvæðin í Norðvesturkjördæmi aftur. Við endurtalningu kom fram mismikil skekkja í tölum allra framboða sem buðu fram í kjördæminu auk þess sem greiddum atkvæðum í kosningunum fjölgaði um tvö. Breytingin leiddi síðan til þess að hringekja með fimm jöfnunarþingsætum í landinu fór í gang og snerti verðandi þingmenn í fimm kjördæmum af sex.\r\n\r\nVarðandi geymslu atkvæða á Hótel Borgarnesi milli fyrri og síðari talningar segir Karl Gauti: „Þar virðast atvik hafa verið með þeim hætti að til dæmis hafi atkvæðabunkarnir ekki verið innsiglaðir. Það þarf að upplýsa um það hvernig þetta var nákvæmlega geymt og ef það er minnsti möguleiki á því að einhver hafi getað nálgast þá, bara möguleiki, að þá eru þessir bunkar auðvitað handónýtir,“ sagði Karl Gauti í samtali við visi.is og bætir við að lögregla verði að upplýsa málið og leiða sannleikann í ljós. „Það er gríðarlega mikilvægt fyrir lýðræðið í landinu,“ segir Karl Gauti.",
"innerBlocks": []
}