Ekkert ferðaveður á Vesturlandi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Appelsínugul viðvörun er nú í gildi á öllu Vesturlandi. Við Breiðafjörð er viðvörunin í gildi til klukkan ellefu í kvöld en þar er norðvestan 20-28 m/s, hvassast norðan til, éljagangur með skafrenningi og lélegu skyggni. Einnig er sagt að búast megi við hækkandi sjávarstöðu vegna áhlaðanda. Við Faxaflóa er appelsínugul viðvörun í gildi til klukkan níu í kvöld en þá tekur við gul viðvörun á svæðinu til miðnættis. Á þessu svæði er rok eða ofsaveður, 20-28 m/s á Snæfellsnesi og geta vindhviður farið yfir 45 m/s. Heldur hægari vindur á öðrum svæðum á þessu spásvæði en getur þó verið hvass vindur, éljagangur og lélegt skyggni. Hætt er á foktjóni í landshlutanum og ekkert ferðaveður.\r\n\r\nSamkvæmt Vegagerðinni er búið að loka Bröttubrekku, Fróðárheiði og Holtavörðuheiði vegna óveðurs. Þá er færð víða slæm, sérstaklega á sunnanverðu Snæfellsnesi og í Dölum.",
  "innerBlocks": []
}