Breyttar reglur á landamærunum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Breyttar reglur um takmarkanir á landamærunum vegna Covid-19 taka gildi á föstudaginn 1. október. Þá verður felld niður sú krafa að einstaklingar sem hafa tengsl við Ísland þurfi að framvísa neikvæðu Covid prófi við komu til landsins, en þeir þurfa að sæta sýnatöku við komuna til landsins. Skiptir þá ekki máli hvort viðkomandi er bólusettur eða ekki en óbólusettir farþegar þurfa sem fyrr að fara í fimm daga sóttkví eftir sýnatöku og fara í PCR próf við lok sóttkvíar. Þeir farþegar sem hafa ekki tengsl við Ísland og eru bólusettir þurfa að framvísa vottorði um neikvætt Covid próf, sem má ekki vera eldra en 72 klukkustunda gamalt, í stað sýnatöku við komuna til landsins. Óbólusettir farþegar með engin tengsl við Ísland þurfa að auki að sæta tvöfaldri sýnatöku með fimm daga sóttkví á milli. Börn fædd 2005 eða síðar og tengifarþegar sem fara ekki út fyrir landamærastöð þurfa ekki að sæta neinum takmörkunum vegna sóttvarna á landamærum. Gert er ráð fyrir að þessar takmarkanir gildi til 6. nóvember næstkomandi.",
  "innerBlocks": []
}
Breyttar reglur á landamærunum - Skessuhorn