
Framvegis verður umferðarhraðinn ekki mældur með einni mynd, heldur tveimur, þar sem meðalhraðinn milli A og B verður mældur.
Meðalhraðamyndavélar munu framvegis vakta umferðina
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Vegagerðin, Samgöngustofa og Ríkislögreglustjóri hafa gert samning um sjálfvirkt hraðaeftirlit með löggæslumyndavélum. Markmið samningsins er að fækka banaslysum og alvarlega slösuðum í umferðinni með markvissu hraðaeftirliti á völdum stöðum á þjóðvegum landsins. Helstu nýmæli sem felast í samningnum eru að framvegis verður hægt að nýta myndavélar til að sinna meðalhraðaeftirliti á þjóðvegum, en unnið hefur verið að undirbúningi þess á undanförnum árum. Slíkur búnaður hefur verið settur upp og prófaður, m.a. á Grindavíkurvegi og Norðfjarðarvegi. Meðalhraðamyndavélar verða komnar í gagnið á næstu mánuðum.\r\n\r\n„Ég hef lagt ríka áherslu á umferðaröryggi í ráðherratíð minni. Aðeins með markvissum aðgerðum og fræðslu mun okkur takast að fækka slysum í umferðinni. Sjálfvirkt hraðaeftirlit með myndavélum hefur reynst vel á þjóðvegum landsins, í það minnsta til að minna okkur sjálf á að virða hraðamörk. Við höfum trú á að með nýju meðalhraðaeftirliti verði hægt að fækka hraðakstursbrotum og auka umferðaröryggi enn frekar enda hefur slíkt meðalhraðaeftirlit gefið góða raun í nágrannalöndum okkar,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra sem undirritaði samninginn fyrir hönd ráðuneytisins.\r\n\r\n<strong>Tvö störf verða til á Vesturlandi</strong>\r\n\r\nLögreglustjóraembættið á Vesturlandi sér um umsýslu og úrvinnslu gagna úr myndavélum í umboði Ríkislögreglustjóra. Í samningnum kemur fram að Vegagerðin greiðir á samningstímanum ígildi tveggja stöðugilda á ári til að annast verklega framkvæmd við úrvinnslu sekta og kostnað vegna tæknimála, samtals að hámarki 15 milljónir króna á ári.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_47557\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-47557 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/09/Medalhradamyndavelar-munu-framvegis-vakta-umferdina_2-600x400.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"400\" /> Frá undirritun samstarfssamnings um meðalhraðavöktun. Frá vinstri: Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri, Kristín Helga Markúsdóttir framkvæmdastjóri stjórnsýslu og þróunar hjá Samgöngustofu, Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar.[/caption]",
"innerBlocks": []
}