Frá Fróðárheiði í gær. Ljósm. þa.

Færð spilltist í gær

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Félagar í björgunarsveitinni Lífsbjörg í Snæfellsbæ þurftu að aðstoða nokkra ökumenn sem fest höfðu bíla sína í snjó á Fróðárheiði eftir hádegið í gær. Mjög kröpp lægð gekk þá yfir landið og gaf veðurstofan út appelsínugula viðvörun fyrir stóran hluta landsins. Hitastig fór niður fyrir núllið á heiðinni og fór vindur mest í um 50 metra á sekúndu í hviðum á Hraunsmúla í Staðarsveit og í 40 metra á sekúndu á Fróðárheiði.\r\n\r\nÁ Vatnaleið var krapi og líka yfir Seljadal en ekki er vitað af teljandi vandræðum á þeim slóðum. Þá varð einnig vart við slyddu í Ólafsvík. Þar fór vindur í 25 metra á sekúndu og mátti sjá það á Bæjarfossinum sem rauk meira og minna út í veður og vind.\r\n\r\nÞetta er fyrsta útkall björgunarsveita á Vesturlandi þetta haustið vegna bifreiða í vandræðum í snjó á fjallvegum. Eru ökumenn hvattir til þess að fara sérstaklega varlega nú þegar haustið gerir hressilega vart við sig og fæstir komnir á vetrardekk. Þeir sem vilja vera á nagladekkjum yfir veturinn er bent á að ekki er heimilt að aka um á nöglum fyrr en 1. nóvember.\r\n\r\n ",
  "innerBlocks": []
}
Færð spilltist í gær - Skessuhorn