Sigríður Dóra Sigurgeirsdóttir, framkvæmdastjóri UMSB. Ljósm. vaks.

Alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Sigríður Dóra Sigurgeirsdóttir tók nýlega við af Sigurði Guðmundssyni sem framkvæmdastjóri Ungmennasambands Borgarfjarðar, en hún hefur undanfarin ár verið tómstundafulltrúi hjá UMSB. Á dögunum kíkti blaðamaður við hjá Siggu Dóru, eins og hún er jafnan kölluð, á skrifstofu sambandsins við Skallagrímsgötu í Borgarnesi og það lá beinast við að spyrja Siggu Dóru hvernig henni lítist á nýja starfið?\r\n\r\n„Mjög vel, ég er rosa spennt fyrir þessu og það er alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt. Ég hef starfað hjá UMSB síðustu fimm ár sem tómstundafulltrúi en fyrir sjö árum færði Borgarbyggð tómstundamálin yfir til Ungmennasambandsins. Við höfum verið tveir starfsmenn hérna, ég og Sigurður sem framkvæmdastjóri, en Pálmi Blængsson var á undan honum í því starfi. Ég hef verið með þeim í sama húsi allan þennan tíma og þó við séum ekki að sinna sömu verkefnum þá hef ég komið mér inn í ýmis mál. Sem tómstundafulltrúi sá ég um frístundina, félagsheimilið Óðal og ungmennaráðið og allt sem við kemur börnum.“\r\n\r\nSigga Dóra segir að hún hafi verið beðin um að stíga inn tímabundið sem framkvæmdastjóri og þá hafi Svala Eyjólfsdóttir verið ráðin í 60 prósent starf sem tómstundafulltrúi en eftir áramót verði Svala í fullu starfi. Fyrstu dagana sem framkvæmdastjóri segir Sigga Dóra aðallega hafa falist í að koma sér inn í verkefnin, hafa samband við deildirnar og aðildarfélögin innan sambandsins og láta vita af sér, en þetta taki allt tíma. „Ég er búin að vera í samskiptum við sunddeildina sem hefur ekki verið starfandi í mörg ár en það er loksins eitthvað að gerast þar og það er mjög spennandi. Það er búið að semja við sundkennara um þjálfun og boðið verður upp á sundæfingar einu sinni í viku fram að áramótum og æfingar hefjast fyrstu vikuna í október.“\r\n\r\n<strong>Frjálsar íþróttir í frjálsu falli</strong>\r\n\r\nFyrir utan gluggann á skrifstofu Siggu Dóru sér blaðamaður glitta í hina glæsilegu aðstöðu til frjálsíþróttaiðkunar sem var gerð áður en Landsmót UMSB var haldið í Borgarnesi árið 1997. Hins vegar má segja að ansi lítið hafi gerst síðan þessi aðstaða kom varðandi frjálsar íþróttir í bænum og miður að ekki hafi verið byggt upp öflugra starf meðal barna og unglinga í Borgarbyggð síðustu tvo áratugi. Burtséð frá þessum vangaveltum blaðamanns segir Sigga Dóra varðandi önnur aðstöðumál að það sé farið að vanta nýtt íþróttahús í Borgarnesi og einnig gervigrasvöll á æfingasvæðinu á Skallagrímsvelli til að hægt sé að æfa knattspyrnu allt árið. „Meistaraflokkar Skallagríms í körfubolta eru á undanþágu vegna þess að íþróttahúsið er einfaldlega ólöglegt því það er of lítið samkvæmt nýjustu stöðlum og reglum. Þá þarf knattspyrnufólkið okkar að æfa og spila annars staðar marga mánuði á ári því aðstaðan er engin á veturna. Ég hefði verið til í að sjá þessi mál vera komin aðeins lengra en það þýðir lítið annað en að vera bjartsýn um að þetta komist á eitthvað skrið því það er búið að bíða lengi eftir að eitthvað gerist í þessum málum,“ segir Sigga Dóra að endingu.",
  "innerBlocks": []
}
Alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt - Skessuhorn