
Heimir Einarsson er annar eigandi Sjamma ehf.
Bygging nýja leikskólans eitt af stærri verkefnum þessa stundina
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "„Okkar verkefni er að koma upp burðarhluta nýja leikskólann við Asparskóga og gera hann fokheldan. Einnig erum við að skila af okkur verkefni af sambærilegri stærð fyrir Veitur ohf upp í Lækjarflóa á næstu dögum. En þar reistum við nýja starfsstöð fyrirtækisins á Vesturlandi og verður formleg opnun á henni nú í síðari hluta þessa mánaðar,“ segir Heimir Einarsson, annar eiganda Sjamma ehf á Akranesi í samtali við tíðindamann Skessuhorns. „Við höfum núna að undanförnu verið að að byggja fjölbýlishús, sem eru staðsett við Asparskóga 13 og 17. Það eru 13 íbúðir í hvorri byggingu. Íbúðirnar eru 36 til 61 fermetrar að stærð. Þessar íbúðir geta hentað þeim sem eru að gera sín fyrstu kaup og einstaklingum sem eru að minnka við sig. Íbúðirnar í fyrra fjölbýlishúsinu að Asparskógum 13, sem við höfum lokið við að reisa, hafa allar verið afhentar nýjum eigendum. Fjölbýlishúsið að Asparskógum 17 er í byggingu og er gert ráð fyrir að það verði tilbúið á fyrri hluta næsta árs.“\r\n\r\nAuk þessara verkefna hefur Sjammi ehf byggt á undanförnum árum par- og raðhús á Akranesi. „Við höfum skilað þessum húsum alveg fullbúnum. Steyptar stéttir, frágengnar lóðir og öll helstu heimilistæki fylgja með. Í flestum tilvikum hefur þetta verið þannig að þeir kaupendur sem ganga snemma frá kaupum hafa sett sinn svip á íbúðirnar með því að breyta efnisvali að sínum smekk. Par- og raðhúsin eru við Viðjuskóga, Blómalund, Fagralund og Álfalund og eru rúmlega 30 að tölu.“\r\n\r\n<em>Sjá nánar spjall við Heimi í Skessuhorni vikunnar.</em>",
"innerBlocks": []
}