
Beint streymi nú á eftir frá fyrstu úthlutun Matvælasjóðs
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Gréta María Grétarsdóttir, formaður Matvælasjóðs, kynna fyrstu úthlutun sjóðsins í beinu streymi í dag, 16. desember kl. 09:30. Alls bárust 263 umsóknir um styrki. Sjóðurinn hefur 500 milljónir til úthlutunar.
Sjóðurinn var stofnaður í apríl, en hlutverk hans er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Áhersla er á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu um land allt. Deildir sjóðsins eru fjórar:
Bára styrkir verkefni á hugmyndastigi og er styrknum ætlað að fleyta hugmynd yfir í verkefni. Alls bárust 126 umsóknir í Báru.
Afurð styrkir verkefni sem komin eru af hugmyndastigi og miða að því móta og þróa afurð og gera hana verðmætari. Alls bárust 50 umsóknir í Afurð.
Kelda styrkir rannsóknarverkefni sem miða að því að skapa nýja þekkingu. Alls bárust 48 umsóknir í Keldu.
Fjársjóður styrkir sókn á markaði. Alls bárust 37 umsóknir í Fjársjóð.
Viðburðurinn á Facebook: https://www.facebook.com/events/375824733718435/
Hægt er að fylgjast með streyminu hér:
https://www.youtube.com/watch?v=wgipx6M8-bc&feature=emb_title