
Litakóði samþykktur vegna Covid-19
Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra og embættis landlæknis að Covid-19 viðvörunarkerfi sem byggir á litum líkt og veðurviðvörunarkerfi Veðurstofu Íslands. Viðvörunarkerfinu er ætlað að auka fyrirsjáanleika til lengri tíma varðandi þær aðgerðir sem grípa þarf til í baráttunni við faraldurinn og lágmarka þannig heildarskaðann sem hann veldur í samfélaginu. Kerfið verður kynnt á næsta upplýsingafundi almannavarna og landlæknis á mánudag.