
Framúrskarandi í matreiðslu á íslensku lambakjöti
Bjarteyjarsandur og Narfeyrarstofa meðal verðlaunahafa
Nú í hádeginu veiddi Oddný Steina Valsdóttir, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda, 21 veitingastað viðurkenninguna Icelandic Lamb – Award of Excellence. Viðurkenning þessi er veitt veitinga- og gististöðum fyrir framúrskarandi matreiðslu á íslensku lambakjöti og eftirtektarverð störf við kynningu á íslenska lambakjötinu til ferðamanna. Tveir staðir á Vesturlandi eru handhafar verðlaunanna í þetta skiptið; Bjarteyjarsandur í Hvalfirði og Narfeyrarstofa í Stykkishólmi.
Dómnefnd skipuð Sigurbjörgu Jónasdóttur, útvarpskonu Ríkisútvarpsins, Dominique Plédel Jónsson hjá SlowFood Reykjavík og Hafliða Halldórssyni, verkefnastjóra hjá Icelandic Lamb, sá um að velja staðina sem hlutu viðurkenningar.
Þeir staðir sem hlutu viðurkenninguna að þessu sinni eru, í stafrófsröð:
Bjarteyjarsandur í Hvalfirði
Eldhúsið Restaurant-Gistihúsið Egilsstöðum
Fiskfélagið
Fiskmarkaðurinn
Fosshótel Jökulsárlón Restaurant
Grillið – Hótel Sögu
Haust Restaurant – Fosshótel Reykjavík
Hótel Anna
Hótel Smyrlabjörg
Íslenski Barinn
Kopar
Lamb Inn, Eyjafjarðarsveit
Matarkjallarinn
Múlaberg Bistro
Narfeyrarstofa
Rústík
Salka,Húsavík
Slippurinn, Vestmannaeyjum
Sushi Social
Von Mathús, Hafnarfirði
VOX
Er þetta í annað sinn sem þessi viðurkenning er veitt samstarfsaðilum Icelandic Lamb á sviði veitinga- og gististaða. Alls eru yfir 90 íslenskir veitingastaðir samstarfsaðilar sauðfjárbænda í gegnum verkefnið Icelandic Lamb. Er því ætlað að undirstrika sérstöðu íslenskra sauðfjárafurða með tilvísun til uppruna, hreinleika og gæða. „Árangurinn hefur farið fram úr björtustu vönum og sala á lambakjöti aukist verulega hjá veitinga- og gististöðum sem taka þátt í verkefninu,“ segir í tilkynningu frá Icelandic Lamb.