
Nýr bæklingur um Einkunnir
Á dögunum var gefinn út nýr bæklingur um fólkvanginn Einkunnir í Borgarfirði. Í honum er að finna upplýsingar um tilurð fólkvangsins og einkenni, skipulag og nýtingu. Kort af svæðinu ásamt gönguleiðakorti er að finna á bakhlið. Bæklinginn er hægt að nálgast í ráðhúsi Borgarbyggðar og á upplýsingamiðstöðvum.