
Rafmagnslaust aðfaranótt fimmtudags
Vegna viðhaldsvinnu Landsnets við aðveitustöðina á Vatnshömrum í Andakíl verður rafmagnslaust á öllu Snæfellsnesi og í Borgarfirði, þ.m.t. Stykkishólmi, Grundarfirði, Ólafsvík, Hellissandi, Vegamótum og Borgarnesi, frá miðnætti og til klukkan 02:10 aðfaranótt fimmtudagsins 11. júní. „Viðskiptavinir eru hvattir til að gera viðeigandi ráðstafanir vegna þessa. Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð í síma 528-9000.“
